Ákvarðanafælni í borgarstjórn 23. apríl 2009 19:11
Borgarstjórn þorir ekki að taka ákvarðanir og þess vegna er allt stopp segja verktakar sem vilja framkvæma. Þeir þora þó ekki að koma fram af hræðslu við að lenda á svörtum lista hjá borginni. Verktakar og starfsmenn fasteignafélaga víðs vegar um borgina eru reiðir Reykjavíkurborg sem þeir segja erfiða í samstarfi. Víða séu reitir þar sem menn vilja hefja framkvæmdir en borgin neitar þeim um leyfi nema farið sé í einu og öllu eftir þeirra hugmyndum sem oft henta ekki lóðareigendum. Mikill fjöldi hefur haft samband við fréttastofu vegna málsins að undanförnu en fáir þora þó að tjá sig opinberlega vegna hræðslu við að lenda á svörtum lista hjá borginni. Aðrir sýna þó skilning, segir Sveinn Björnsson, forstjóri Novator properties. Novator properties, sem 69% er í eigu þrotabús Samson eignarhaldsfélags, vinnur nú aðallega að tveimur reitum í borginni, annars vegar að Listaháskólanum og síðan Barónsreitur. Björn viðurkennir þó að hlutirnir mættu ganga hraðar fyrir sig. „Þetta hefur þvælst fyrir í ferlinu,“ segir Svein. Hann segir þó ólíkt mörgum verktökum sem hringt hafa inn vegna málsins og ekki fá fund með borginni, viðmótið hafa verið ágætt í þeirra garð. Sveinn segir að pólitískt séð séu borgarfulltrúar hræddir við að taka ákvarðanir. Og ekki að ástæðulausu enda hafa þrýstihópar sem vilja vernda ákveðna borgarmynd haft sitt að segja um gang mála. Atvinnuleysi á Íslandi nálgast hins vegar 10%. Ef framkvæmdir færu í gang á mörgum þessara staða þýddi það atvinnu fyrir stóran hóp manna, verkfræðinga, byggingafræðinga, arkitekta svo ekki sé talað um alla iðnaðarmennina. Björn segir mikilvægt að verktakar sýni skilning og komi til móts við borgina enda hafi hún margt til síns máls. Mikilvægt sé hins vegar einnig að ferlum sé hraðað innan borgarinnar.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Fleiri fréttir Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi Sjá meira