Skátarnir áberandi í hátíðarhöldum dagsins 23. apríl 2009 12:55 MYND/GVA
Skátar, skrúðgöngur, lúðrablástur, vöfflur og rjómi. Sumardagurinn fyrsti er runninn upp og fraus saman við síðasta vetrardag, mörgum hjátrúuðum landsmönnum áreiðanlega til mikillar gleði. Já, sumarið komið, eða svo segir dagatalið, með sinni árlegu skátamessu í Hallgrímskirkju þar sem Hjörleifur Valsson lék á Stradivaríusinn inn sumarið. Ágætlega var mætt í skrúðgöngu skáta frá Arnarhóli í morgun þar sem prýðilegt íslenskt sumardagsveður lék við göngufólk, stillt en grár dumbungur. Allir helstu mektarmenn þjóðarinnar komu síðan saman í Hallgrímskirkju og hlýddu á skátamessuna. Þessum fyrsta degi sumars verður víða fagnað með skrúðgöngum og öðrum hátíðahöldum á landinu. Fjölskylduhátíðir verða í helstu hverfum Reykjavíkur. Í Vesturbænum verður haldið í skrúðgöngu frá Melaskóla klukkan eitt og fjölskylduhátíð hefst við Frostaskjól klukkan hálftvö. Í Grafarvogi fer skrúðganga frá Spönginni klukkan korter í eitt og hátíðahöldin hefjast síðan við Rimaskóla klukkan eitt. Allar upplýsingar um sumarhátíðir í Reykjavík eru á vefsíðunni ítr.is. Á Akureyri verður fjölskyldustemmning við Minjasafnið frá tvö til fjögur með útileikjum, lummuáti og kakódrykkju. Að vanda verða skátarnir áberandi í hátíðarhöldum dagsins og flest skátafélög landsins taka þátt. Upplýsingar eru á skátar.is. Og svo hefur það efalaust vakið mörgum gleði að síðasti vetrardagur og sumardagurinn fyrsti frusu saman, ekki síst öllum þeim fjölda fólks sem treystir sér ekki í utanlandsferðir þetta árið. Það mun samkvæmt þjóðtrúnni eiga von á heldur betri tíð í sumar en ef ekkert hefði frostið verið í nótt. Gleðilegt sumar!
Tengdar fréttir Sigmundur Davíð á fjölskylduhátíð framsóknarmanna Sumarhátíð Framsóknarflokksins í Reykjavík verður haldin á Ingólfstorgi í dag klukkan 14. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, græna frostpinna, hoppikastala, dýrablöðrur og andlitsmálningu. 23. apríl 2009 09:30 Fyrsta degi sumars víða fagnað Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land verður þessum fyrsta degi sumars fagnað með skrúðgöngum og öðrum hátíðahöldum. Fjölskylduhátíðir verða í helstu hverfum Reykjavíkur í dag. 23. apríl 2009 10:30 Ræningjarnir þrír á hátíð sjálfstæðismanna Sjálfstæðisflokkurinn efnir til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í dag, sumardaginn fyrsta. Ræningjarnir í Kardimommubænum, þeir Kasper, Jesper og Jónatan, verða meðal skemmtiatriða. 23. apríl 2009 11:03 Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira
Sigmundur Davíð á fjölskylduhátíð framsóknarmanna Sumarhátíð Framsóknarflokksins í Reykjavík verður haldin á Ingólfstorgi í dag klukkan 14. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, græna frostpinna, hoppikastala, dýrablöðrur og andlitsmálningu. 23. apríl 2009 09:30
Fyrsta degi sumars víða fagnað Sumardagurinn fyrsti rann upp bjartur og fagur á höfuðborgarsvæðinu og víða um land verður þessum fyrsta degi sumars fagnað með skrúðgöngum og öðrum hátíðahöldum. Fjölskylduhátíðir verða í helstu hverfum Reykjavíkur í dag. 23. apríl 2009 10:30
Ræningjarnir þrír á hátíð sjálfstæðismanna Sjálfstæðisflokkurinn efnir til fjölskylduhátíðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Reykjavík í dag, sumardaginn fyrsta. Ræningjarnir í Kardimommubænum, þeir Kasper, Jesper og Jónatan, verða meðal skemmtiatriða. 23. apríl 2009 11:03