Innlent

Ægir á undan áætlun

Qavak í kjölfari Ægis.
Qavak í kjölfari Ægis. MYNd/Guðmundur St. Valdimarsson
Vel hefur gengið hjá varðskipinu Ægi en það er á leið til hafnar með Grænlenska bátinn Qavak í togi sem varð vélarvana miðja vegu á milli Grænlands og Íslands í fyrradag. Dráttartaug var komið fyrir um borð í bátnum í gærmorgun og hafa skipin verið á siglingu síðan þá. Fyrst var reiknað með að þau næðu til hafnar á miðvikudagsmorgun en samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er nú reiknað með að Ægir komi til hafnar í Reykjavík um áttaleytið í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×