Innlent

Hestur steig á höfuð á barni

Lögreglan í Borgarnesi fékk tilkynningu klukkan þrjú í dag um að hross hefði stigið á höfuð á litlu barni. Slysið átti sér stað í Lerá- og Melasveit en barnið var flutt með sjúkrabíl í hvelli til Reykjavíkur.

Að sögn varðstjóra í Borgarnesi reyndist barnið minna slasað en útlit var fyrir í upphafi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×