Innlent

Var að senda SMS, ók á ljósastaur og velti bílnum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um hóp drengja að skemma bifreiðar við Gullengi í nótt, höfðu þeir gert sér að leik að henda grjóti í bifreiðar, með þeim afleiðingum að framrúða var brotin, ljóskastarar og ökuljós tveggja bifreiða. Þá voru þær rispaðar og dældaðar. Þeir tóku á rás er lögregla kom en hún náði að hlaupa einn þeirra uppi. Hann reyndist vera einungis 14 ára gamall en samkvæmt lögum er ekki heimilt að vera úti einsamall á þessum tíma. Hann var færður á lögreglustöð og foreldrum gert að sækja drenginn.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar frá því í gær og í nótt. Þá segir einnig að klukkan 22:17 í gærkvöldi hafi verið tilkynnt um bílveltu á Reykjanesbraut við IKEA. en ökumaðurinn er fæddur árið 1987. Talið er að hann hafi verið að senda SMS meðan hann var að stjórna bifreiðinni, athyglin var ekki meiri en það að hann ók á ljósastaur og við það valt bifreiðin. Jafnaldri hans var í farþegasæti en þeir voru báðir fluttir lemstraðir á Slysadeild. Ökumaðurinn er sviptur ökuréttindum og átti því með réttu ekki að vera að aka bifreið, þá fannst lítiðræði að ætlum fíkniefnum á þeim félögum.

Þá var tilkynnt um átök milli tveggja manna á skemmtistað í miðborginni sem endaði með því að annar þeirra lá rotaður eftir, hann var fluttur á SLD með sjúkrabifreið og hinum sleppt eftir viðræður við lögreglu.

Að öðru leyti var nokkuð rólegt hjá lögreglu, fámennt í miðborginni og ekki mikla ölvun að sjá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×