Innlent

Sóttu veika konu í portúgalskt farþegaskip í nótt

TF-LÍF
TF-LÍF MYND/Guðmundur St. Valdimarsson

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF var kölluð út kl. 02:35 í nótt þegar portúgalska farþegaskipið FUNCHAL hafði samband við StjórnstöðLandhelgisgæslunnar og óskaði eftir að 67 ára gömul veik kona yrði sótt um borð í skipið. Að mati þyrlulæknis var talið nauðsynlegt að sækja konuna.

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF fór frá Reykjavik kl. 04:06 og var komin að skipinu kl. 05:25 á stað 62°47,8'N 017°26,3'V, eða um 85 sml SA af Vestmannaeyjum.

Þyrlulæknir seig niður ásamt stýrimanni og undirbjuggu þeir sjúkling fyrir hífingu. Var hífingu var lokið Kl. 06:15 og hélt þá TF-LIF til Reykjavikur þar sem hún lendir við Borgarspítalann kl. 07:25. Farþegaskipið FUNCHAL er tæplega 10 þúsund tonn og var á leið frá Íslandi eftir heimsókn til Reykjavíkur og Ísafjarðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×