Innlent

Eldur í bíl í Rockville - myndband

Bíllinn varð alelda á örskotsstundu.
Bíllinn varð alelda á örskotsstundu. MYND/WWW.245.IS
Eldur kom upp í bíl á Rockvillesvæðinu svokallaða í grennd við Sandgerði í gærkvöldi. Nokkur ungmenni léku sé að því að spóla þar á planinu að sögn fréttamiðilsins www.245.is. Leikur ungmennanna endaði með því að eitt dekkið sprakk og eigandi bílsins fór að huga að dekkinu, þá heyrðist smellur í vélinni og um leið kom upp eldur.

Þá segir að hringt hafi verið strax í neyðarlínuna sem kom boðum til slökkviliðsins í Sandgerði sem voru komnir á vettvang á innan við átta mínútum frá útkalli.

Bíllinn var þá orðinn alelda, en greiðlega gekk að slökkva eldinn. Enginn meiðsli urðu á fólki.

Útsendarar www.245.is voru á staðnum og tóku myndband af slökkvistarfinu sem sjá má hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×