Innlent

Dalai Lama kominn til landsins - myndir

Dalai Lama heilsar í Leifsstöð í gærkvöldi.
Dalai Lama heilsar í Leifsstöð í gærkvöldi. Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, sem verið hefur í útlegð í hálfa öld kom til Íslands rétt fyrir klukkan 21:00 í gærkvöldi frá Kaupmannahöfn. Lama var hinn hressasti við komuna í Keflavík og heilsaði viðstöddum með virktum að því er segir frá á fréttavef Víkurfrétta.

Þá segir í frétt þeirra um málið að nokkuð hafi verið ritað um heimsókn leiðtogans hér á landi. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra sagði að það væri hverjum ráðherra í sjálfvald sett hvort þeir kysu að hitta Lama. Ekki er vitað að hann sé að hitta neinn af ráðamönnum þjóðarinnar í heimsókninni. Hann mun ræða við fréttamenn á blaðamannafundi í dag.

Rjómablíða var í Keflavík í gærkvöldi og Lama og fylgdarlið naut hennar. Lama fór í fremsta bíl í bílaröð sem fylgdi honum til Reykjavíkur. Karlinn opnaði gluggann í hitanum og brosti sínu blíðasta þegar Volvo bifreið þaut af stað með hann til Reykjavíkur.



Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson
Víkurfréttamyndir/Páll Ketilsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×