Innlent

Gæslan nær ekki að fullmanna bakvaktir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Það þurfti að kalla út fólk í fríi til að manna bakvakt hjá Gæslunni í nótt. /Guðmundur St. Valdimarsson
Það þurfti að kalla út fólk í fríi til að manna bakvakt hjá Gæslunni í nótt. /Guðmundur St. Valdimarsson
Ekki er hægt að tryggja að Landhelgisgæslan geti sent tvær þyrlur í loftið á sama tíma ef þörf krefur, segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Gæslan hefur þurft að segja upp starfsfólki vegna niðurskurðar. Einn flugmaður lét af störfum á miðnætti í gær og ef fer sem horfir láta tveir af störfum í haust.

Georg segir að þegar þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út í nótt til að sækja veika konu á skemmtiferðaskip um 85 sjómílur suðaustan af Vestmannaeyjum hafi þurft að manna bakvakt með starfsmönnum sem voru í fríi svo að áhöfnin sem var á vakt gæti sótt konuna. „Það náðist að manna en það byggist bara á því að mannskapurinn sem við eigum er hugsjónarmenn og þeim er það annt um þessa starfsemi að það náðist að manna hana með mönnum sem voru í fríi. Það er í sjálfu sér einstakt að menn skuli vera það vaknir og sofnir yfir þessari starfsemi að þeir skuli vera tilbúnir að koma utan að landi til að mæta á vakt," segir Georg í samtali við fréttastofu.

Georg bendir á að verulegur niðurskurður hafi verið hjá Landhelgisgæslunni sem þurfi að takast á við. Hún sé því ekki eins vel mönnuð og æskilegt væri. „Það sem hefur gerst er það að við náum ekki að vera alla daga ársins allan sólarhringinn með tvær vaktir," segir Georg. Aðspurður hvort hægt yrði að kalla út tvær þyrlur í einu ef með þyrfti segir Georg að það sé vel hugsanlegt en ekki sé hægt að tryggja það. „Þetta er bara það einfalt að það eru sex áhafnir í gangi hjá okkur og með því að missa tvo flugmenn að þá erum við búin að missa eina áhöfn," segir Georg. Georg leggur jafnframt áherslu á að málið snúist ekki einungis um að manna áhöfn með flugmönnum heldur þurfi líka að manna áhöfnina með stýrimönnum og flugvirkjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×