Umfjöllun: Stefán Logi sá rautt í sigri KR á Víði Elvar Geir Magnússon skrifar 6. júlí 2009 22:00 Stefán Logi fékk rauða spjaldið í kvöld og verður í banni gegn Val í Pepsi-deildinni á laugardag.
KR-ingar áttu ekki í teljandi vandræðum með Víði í Garðinum í kvöld og unnu 2-0 sigur. Þeir voru einum færri nánast allan seinni hálfleikinn eftir að markvörðurinn Stefán Logi Magnússon fékk að líta rauða spjaldið. Víðismönnum gekk illa að skapa sér færir þrátt fyrir liðsmuninn. Björgólfur Takefusa var í aðalhlutverki í fyrri hálfleiknum. Hann náði snemma leiks að koma knettinum í netið en aðstoðardómarinn flaggaði til merkis um rangstöðu. Þá var hann nálægt því að skora um miðjan hálfleikinn þegar varnarmaður heimaliðsins bjargaði ævintýralega á marklínu. Á 43. mínútu kom loks markið eftir mikinn vandræðagang í vörn Víðismanna. Björgólfur fékk nægan tíma til að athafna sig með knöttinn áður en hann skoraði. Reyndist þetta eina markið í fyrri hálfleiknum. Það var ekki mikið búið af seinni hálfleik þegar Stefán Logi fékk að líta rauða spjaldið. Stefán rauk út úr markinu og braut á sóknarmanni Víðis sem var að sleppa í gegn. Þorvaldur Árnason dómari sá ekki annan kost en reka Stefán af velli og fór Atli Jónasson í markið. Atli hafði þó ekki mjög mikið að gera þar sem KR-ingar héldu öllum völdum á vellinum þrátt fyrir að vera tíu gegn ellefu. KR fékk nokkur virkilega góð færi í seinni hálfleiknum. Það er ótrúlegt að Atli Jóhannsson hafi ekki náð að skora en hann fékk tvö dauðafæri en tókst ekki að hitta á rammann. Víðir fékk í raun aðeins eitt teljandi færi í seinni hálfeiknum en þá skaut Björn Björnsson yfir. Varamaðurinn Guðmundur Pétursson innsiglaði síðan 2-0 sigur KR í uppbótartíma, hann slapp einn í gegn og lék á markvörðinn Rúnar Daníelsson áður en hann renndi knettinum í tómt markið. Bikarmeistarar KR unnu því 2-0 sigur sem var þó enn öruggari en tölurnar gefa til kynna. Víðismenn hafa verið í tómu basli í 2. deildinni í sumar og ollið miklum vonbrigðum. Það sást vel í kvöld að KR var alltof stór biti fyrir þá. Eftir þennan leik er þó ljóst að Stefán Logi verður í leikbanni í næsta leik KR þegar Atli Eðvaldsson mætir með Valsmennina sína í Frostaskjólið. Þá er óvíst með varnarmanninn Mark Rutgers sem þurfti að fara af velli í fyrri hálfleiknum vegna meiðsla.Víðir - KR 0-2 0-1 Björgólfur Takefusa (43.) 0-2 Guðmundur Pétursson (92.) Rautt spjald: Stefán Logi Magnússon (KR)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Gri/Nja - Fram | Gætu endað hlið við hlið í kvöld Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Eiður Smári þjálfar KA Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm Sjá meira