Enski boltinn

Brown fær að minnsta kosti einn leik í viðbót

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Phil Brown, stjóri Hull City.
Phil Brown, stjóri Hull City. Nordic Photos / Getty Images
Adam Pearson, nýr stjórnarformaður Hull City, segir að Phil Brown mun stýra liðinu gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Pearson er nýtekinn við starfinu en Phil Duffen hætti sem stjórnarformaður í síðustu viku. Pearson var síðast einn forráðamanna Hull fyrir tveimur árum síðan.

„Phil mun stýra liðinu á sunnudag," sagði Pearson við enska fjölmiðla. „En hann er vissulega ekki með æviráðningu. Við þurfum sárlega á stigum að halda og það setur pressu á alla starfsmenn félagsins."

Hull hefur unnið aðeins tvo leiki á tímabilinu og er í fallsæti eins og er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×