Mikið hlegið á Korputorgi 24. október 2009 03:45 Bjarni Haukur útskýrir fyrir áhorfendum hvernig tökurnar fara fram og hvað þeir megi eiga von á.
Upptökur á sjónvarpsþættinum Hjá Marteini fóru fram á mánudaginn í sérstöku myndveri á Korputorgi. Þátturinn er tekinn upp fyrir framan áhorfendur í sal. „Þetta gekk eiginlega vonum framar og það var miklu meira hlegið en maður þorði að vona. Ég er búinn að leika í á annað hundrað farsa-sýningum og þetta var alveg á pari við það og gott betur,“ segir Jóhannes Haukur Jóhannesson, einn aðalleikara þáttarins. Auk hans eru Kjartan Guðjónsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Maríanna Clara Lúthersdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir í stórum hlutverkum. Þættirnir sem voru teknir upp á mánudaginn voru númer 1 og 2 en þættir 3 og 4 voru teknir upp fyrst. „Þetta var gert til að við værum aðeins sjóaðri í fyrstu þáttunum,“ útskýrir Jóhannes en leikstjóri Hjá Marteini er Bjarni Haukur Þórsson. Jóhannes segir það hafa verið eilítið skrítið að leika bæði fyrir vökulum augum sjónvarpsvélanna og áhorfenda. „Við hugsum fyrst og fremst um sjónvarpsvélarnar enda má ekki vera of mikill sviðsbragur á leiknum. Og munurinn er auðvitað sá að við fengum að taka atriðin upp tvisvar.“ Jóhannes segir það hafa komið sér á óvart hversu vel hafi gengið að fá fólk til að hlæja að sama brandaranum tvisvar. „Við bættum aðeins við í seinna skiptið og það virtist ganga upp.“ Jóhannes er nú á fullu við að leika í Hellisbúanum og nú þegar er búið að bæta við sýningum í Íslensku óperunni. Fullt var út úr húsi á þremur sýningum í Sjallanum fyrir norðan og leikarinn segir það kitla eilítið að fara meira út á land. Og það er ekki hægt að sleppa Jóhannesi án þess að spyrja leikarann hver ætti að leika hlutverk hans í amerísku útgáfunni af Reykjavik-Rotterdam. „Ég. Ef ekki finnst mér að Brendan Fraser ætti að gera það. Við erum það líkir og svo myndi Fraser líka fá hlutverk sem væri allt öðruvísi en það sem hann hefur gert hingað til. Svona svipað og var hjá mér.“ Eiginkonan og leikarinn Edda Björg leikur sambýliskonu Marteins og besti vinur hans er Kjartan, vonlaus leikari sem dreymir um frægð og frama. Fréttablaðið/Anton Marteinn Haukur hefur verið að stimpla sig inn sem einn fremsti gamanleikari þjóðarinnar. Hann leikur sjálfan Martein sem allt snýst um. Leikhópurinn Katla Margrét, Maríanna Clara, Kjartan Guðjónsson, Edda Björg og Jóhannes Haukur stilla sér upp fyrir framan áhorfendur. Fréttablaðið/Anton Mikið hlegið Áhorfendur á Korputorgi virtust hafa gaman af því sem þeir sáu. Einstakt Sjónvarpsþátturinn Hjá Marteini er leikinn fyrir framan áhorfendur í sal en þetta ku vera í fyrsta skipti sem það er gert.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira