Peningaflíkum ekki stolið frá Ása 1. október 2009 04:00 Peningaflíkur í tísku. Ásgrímur Már segir það einskæra tilviljun að fyrirsætur í nýrri auglýsingu klæðist flíkum sem svipar til kjóls sem hann hafi hannað. „
Ég var reyndar bara að sjá auglýsinguna í dag og þetta líkist mjög kjólnum sem ég hannaði. Ég held ekki að auglýsingastofan hafi stolið hugmyndinni af mér, þetta er örugglega bara tilviljun,“ segir fatahönnuðurinn Ásgrímur Már Friðriksson um nýja auglýsingu fyrirtækisins N1, en þar má sjá fyrirsætur klæddar peningaflíkum ekki ósvipuðum peningakjól sem Ásgrímur Már hannaði fyrir jólasýningu listasafns ASÍ í fyrra. Halldór Reykdal, viðskiptastjóri auglýsingastofunnar Fíton, sem framleiðir auglýsinguna, segir fréttirnar koma sér á óvart. „Ég hafði ekki heyrt af peningakjól Ásgríms fyrr en núna. Hugmyndin að auglýsingunni poppaði upp hjá okkur fyrir einhverju síðan og okkur fannst hún eiga vel við konseptið. Þannig að þetta var alveg ómeðvitað af okkar hálfu.“ Halldór segir að auglýsingin hafi fengið góðar viðtökur frá því að hún fór í birtingu, enda hafi mikið verið lagt í hana. „Við létum hanna raunverulegan peningakjól fyrir sjónvarpsauglýsinguna en flíkurnar fyrir prentauglýsinguna voru unnar á tölvu. Sú ákvörðun að myndvinna flíkurnar eftir á var tekin því það þótti of erfitt og tímafrekt að hanna margar flíkur fyrir auglýsinguna. En það er skemmtilegt frá því að segja að Ásgrímur var á meðal þeirra hönnuða sem við vildum fá til að hanna þessar flíkur.“ Aðspurður hvort þetta sé upphafið að nýrri tískubólu telur Halldór svo ekki vera. „Þetta er ekkert nýtt undir sólinni. Á netinu hefur til dæmis lengi verið hægt að kaupa svipaðar peningaflíkur og jafnvel peningaskó,“ segir Halldór að lokum. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Sjá meira