Innlent

Jóhanna: AGS ræður ekki för

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir lagði ríka áherslu á að AGS réði ekki för í efnahagsmálum Íslendinga. Mynd/ Stefán.
Jóhanna Sigurðardóttir lagði ríka áherslu á að AGS réði ekki för í efnahagsmálum Íslendinga. Mynd/ Stefán.

„Við erum ekki að takast á við halla ríkissjóðs til að þóknast Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða erlendum lánadrottnum," sagði Jóhanna Sigurðardóttir í munnlegri skýrslu sinni um efnahagshorfur á Alþingi.

Jóhanna lagði mikla áherslu á það í ræðu sinni að þrátt fyrir að efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar væri unnin í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn væru það stjórnvöld og Seðlabankinn sem réðu för.

Hart var deilt á orð Franek Rozwadowski, fastafulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi, þegar að hann lýsti efasemdum, á fundi Samtaka fjármálafyrirtækja, um að skilyrði yrðu fyrir verulegri stýrivaxtalækkun í júní, þvert á þau fyrirheit sem Seðlabankinn hefur gefið.

Þá sagði Jóhanna að nauðsynlegt væri að skera niður í ríkisútgjöldum og gera breytingar á skattkerfinu. Hún sagði hins vegar ekkert um það með hvaða hætti það yrði gert.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×