Innlent

Borgarahreyfing: Framkvæmdarstjóri vill 7.7 milljónir

Borgarahreyfingin.
Borgarahreyfingin.

Framkvæmdarstjóri Borgarahreyfingarinnar vill 7.7 milljónir fyrir störf sín en launakröfuna lagði hann fram á félagafundi hreyfingarinnar í gærkvöldi. Það er Jóhann Kristjánsson sem gegnir starfi framkvæmdarstjóra.

Mikil átök urðu á fundinum en samkvæmt RÚV var það ræða sem Guðmundur Andri Skúlason hélt sem hleypti illu blóði í fundarmenn. Hann kom víða við og sakaði stjórn flokksins um að taka ákvarðanir á bak við luktar dyr. Gagnsæið sem hefði verði aðalmerki flokksins væri ekki lengur til staðar.

„Þetta er bara stormur í vatnsglasi," sagði Birgitta Jónsdóttir, þingkona Borgarahreyfingarinnar en benti að öðru leitinu til á stjórn flokksins.

Þegar haft var samband við Guðmund Andra vildi hann ekki tjá sig um málið fyrr en yfirlýsing frá Borgarahreyfingunni yrði send út. Hennar er að vænta síðdegis.

Samkvæmt heimildum Vísis krafðist Jóhann ekki launa vegna starfa sinna á þessum fundi heldur vildi hann að hreyfingin borgaði reikninga vegna kosningabaráttunnar.

Fundarmenn gagnrýndu hann fyrir að vera með milljón á mánuði fyrir störf sín.

Á RÚV kemur fram að Jóhann hafi aðeins lagt fram þessa tölu til að varpa ljósi á þá vinnu sem hann innti af hendi fyrir kosningar. Hann hafi jafnframt gefið 95% afslátt og sagst vera tilbúinn að fá greidd 5%. Stjórnin hafnaði hins vegar því.

Fundarmenn samþykktu að halda aukaaðalfund hið fyrsta á fundinum.

Ekki náðist í Jóhann við vinnslu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×