Arðsemismat stendur þótt aðstæður breytist 25. maí 2009 04:00 stíflan við kárahnjúka Þrátt fyrir gjörbreyttar forsendur með lækkandi álverði verður arðsemismati eigin fjár ekki breytt við virkjunina. Hagfræðingur segir það þó nauðsynlegt til að meta framkvæmdina í heild sinni.fréttablaðið/gva
Arðsemismat eigin fjár vegna Kárahnjúkavirkjunar verður ekki endurskoðað þrátt fyrir að forsendur hafi breyst gríðarlega undanfarið með lækkandi álverði. Matinu var breytt í janúar í fyrra þar sem álverð hafði hækkað umtalsvert. Í desember sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, í samtali við Fréttablaðið ekki ólíklegt að matið yrði endurskoðað. Það verður ekki. „Við ákváðum að gera ekkert sérstakt í þessu. Arðsemismatið var til að taka ákvarðanir um fjárfestingar, en nú erum við að reka mannvirkið,“ segir Þorsteinn. Hann segir ársreikninga rétta tækið til að leggja mat á reksturinn. Einn besti mælikvarði sem þar sjáist sé handbært fé frá rekstri og á síðastliðnu ári hafi fyrirtækið skilað tæplega 185 milljónum dollara til að greiða niður skuldir. Í febrúar fór álverð í um 1.260 dollara og hafði ekki verið lægra síðan árið 2002. Það hækkaði í um 1.500 dollara í mars, en hefur tekið dýfu síðustu daga. Í endurskoðuðu arðsemismati Landsvirkjunar í janúar 2008 var gert ráð fyrir að álverð væri nú í 2.600 krónum á tonnið. Þar segir: „Álverð og langtímaþróun þess er ein mikilvægasta forsendan í arðsemismatinu.“ Þorsteinn segir lágt álverð vissulega koma fyrirtækinu illa og það þýði lægri tekjur. Á móti komi þó lægri vaxtagjöld. Hann segir áætlanir hafa gert ráð fyrir að álverð sveiflaðist og samningarnir við Alcoa væru til 40 ára. Í umræddu endurskoðuðu mati sést hins vegar að gert er ráð fyrir að álverð hækki allt til ársins 2021, að minnsta kosti, verði þá yfir 3.000 dollurum á tonnið. Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun Íslands, segir að samkvæmt matinu frá í janúar 2008, hafi verið gert ráð fyrir um 10 milljarða króna arði af framkvæmdinni. Ljóst sé að þær forsendur hafi breyst. Án endurskoðaðs arðsemismats sé ekki hægt að leggja mat á framkvæmdina. Sigurður segir að í í skýrslu eigendanefndar um áramót 2003, hafi kostnaður við virkjun verið metinn á 95 milljarða króna, eða rúman milljarð Bandaríkjadala á genginu 87,5. Í skýrslu iðnaðarráðherra í fyrra hafi kostnaður verið metinn 133 milljarðar króna og miðað við gengið 69. Það þýði kostnað í dollurum upp á 1.930 milljónir. Kostnaðaráætlunin hafi því farið langt fram úr áætlun í dollurum. kolbeinn@frettabladid.is þorsteinn hilmarsson
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira