Innlent

Ítrekaði andstöðu atvinnulífsins við fyrningarleiðina

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hafi skapað slæmt andrúmsloft í atvinnulífinu.
Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar hafi skapað slæmt andrúmsloft í atvinnulífinu. Mynd/Pjetur
Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, ítrekaði andstöðu samtakanna við áform stjórnvalda við svokallað fyrningarleið á fundi forystumanna ríkisstjórnarinnar með forystu launþega og atvinnurekenda í kvöld.

Forystumennirnir komu saman í stjórnarráðinu á sjöunda tímanum til að ræða fyrirhugaðan stöðugleikasáttmála og segir Þór að fundurinn hafi verið gagnlegur.

„Við ræddum framhald þessa samstarfs sem hvílir á stöðuleikasáttmálanum sem unnið er að. Það lá ekki annað fyrir en að ræða það og fara yfir ástandið eins og það birtist okkur," segir Þór.

Hann kveðst jafnframt hafa ítrekað andstöðu samtaka sinna við fyrningarleiðina. Hugmyndin felur í sér innköllun aflaheimilda á 20 árum.

Þór segir yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar hafa skapað slæmt andrúmsloft í atvinnulífinu. „Hún er að hafa mjög slævandi áhrif á fleiri atvinnuugreinar og það þarf að minnsta kosti að setja þetta í eitthvað samningsferli.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×