Öngþveiti í Gilinu á Aukureyri 12. janúar 2009 18:46
Umferðaröngþveiti varð í Gilinu á Akureyri í morgun þegar snjómokstur olli eignatjóni og ýmisskonar vanda. Verkstjóri hjá bænum telur að loka hefði átt Gilinu á meðan snjómoksturinn fór fram. Snjó hefur kyngt niður á Akureyri síðustu sólahringa. Um níuleytið í morgun skapaðist slysahætta þegar vinnuvélar voru að störfum við snjómokstur í Kaupangsstræti, eða Gilinu, eins og þessi bratta gata er jafnan nefnd í daglegu tali heimamanna. Snjóruðningarnir voru erfiðir yfirferðar og fór svo að ýmis ökutæki, smá og stór, þar á meðal strætisvagnar, komust ekki leiðar sinnar, runnu til og nudduðust saman. Hér varð tjón á bæði strætónum og jeppanum í árekstri. Og sumir urðu að aka ansi frjálslega til að koma í veg fyrir slys. Gangstéttin orðin að aksturssvæði. Vegfarendur, sem fréttastofa ræddi við í morgun, sögðu að þegar aðstæður væri jafnvarasamar og í morgun ætti að loka Gilinu meðan mokstur fer fram. Fréttastofa bar þetta undir Gunnþór Hákonarson verkstjóra hjá framkvæmdadeild bæjarins og viðurkenndi hann að best hefði verið að loka gilinu áður en snjómoksturinn fór fram í morgun. Hans skoðun væri reyndar sú að loka ætti Gilinu miklu oftar en gert er til að auka umferðaröryggi á meðan mokstri stendur. Akureyrarbær hefur nýverið tekið upp á því að nota salt til hálkuvarna í stað sandsins en sandurinn víkur til að minnka svifryk. Allnokkur gagnrýni hefur komið fram á saltnotkunina en bærinn aftekur það með öllu að saltið hafi verið sökudólgurinn í morgun.
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira