Listmunasali býður mótmælendum í kaffi 12. október 2009 10:58 Tryggvi Friðriksson, eigandi Gallerí Foldar. „
Þeim verður áreiðanlega bara boðið í kaffi," segir Tryggvi Friðriksson, eigandi Gallerí Foldar vegna fyrirhugaðra mótmæla Samtaka Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) fyrir utan galleríið klukkan sex í kvöld. Mótmælin fara fram á sama tíma og uppboð fer fram í Galleríinu. Ástæða mótmælanna er sú að SÍM sakar Gallerí Fold um að innheimta fylgiréttargjöld af seldum listaverkum en skila svo ekki gjöldunum áfram til listamannanna sjálfra. SÍM hefur meðal annars stefnt Gallerí Fold fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Þar krefjast þeir 21 milljón króna vegna meintra vangoldinna fylgigjalda. „Við höfum átt lengi í deilum við þá vegna fylgiréttargjaldanna," segir Tryggvi en málið er langt því frá að vera nýtt af nálinni. Hann segir SÍM meðal annars hafa kært galleríið fyrir fjársvik en málið var látið niður falla. Sjálfur er Tryggvi ósáttur við gjöldin og vill meina að SÍM sé að mismuna galleríum, „þeir innheimta gjaldið hjá okkur en ekki öðrum," segir hann. Spurður hvort mótmælin munu breyta einhverju vegna uppboðsins í kvöld segist Tryggvi ekki búast við því og bætir við: „Það verður tekið vel á móti þeim." Uppboðið í kvöld er nokkuð veglegt en þar má finna listaverk eftir Kjarval, Louisu Matthíasdóttur, Ásgrím Jónsson, Þorvald Skúlason, Finn Jónsson og Þórarin B. Þorláksson. Þá verður einnig boðið upp á listaverk eftir núlifandi listamenn eins og Kristján Davíðsson og fleiri.
Tengdar fréttir Mótmæli boðuð fyrir utan Gallerí Fold Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) boðar til mótmæla við Gallerí Fold á Rauðarárstíg klukkan 18:00 í dag. 12. október 2009 10:21 Mest lesið 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Erlent „Hann stal henni“ Erlent Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Innlent Pokrovsk riðar til falls Erlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent Veðurspáin fyrir helgina að skána Innlent Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Innlent Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Innlent Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir Erlent Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána Fjallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Brennisteinsdíoxíð gæti borist um suðvesturhornið Ísland og Palestína gera samkomulag um samstarf Fundu týnda brú við Suðurlandsbraut Engin framlög til jarðganga en óljós áform um innviðafélag Hvað á að gera um Verslunarmannahelgina? Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Ökumaður stöðvaður og kærður fyrir fjölmörg umferðalagabrot Lauma sér inn í útfarir og senda kirkjuvörðum fingurinn Versta sviðsmyndin, galið greiðslumat og óvæntur fundur Fimm prósent fallið fyrir ástarsvikum Halla og Björn ætla til Nýja Íslands Engin fjármögnun gereyðingarvopna á Íslandi Enn varað við svikapóstum: „Við hlökkum til að fá jákvæða svörun frá þér“ Samstarfið við Íra og Frakka tímafrekt Hefja gjaldtöku við höfnina í Stykkishólmi Ágengir ferðamenn hafi sært syrgjandi Mýrdælinga Neyðarástand á Gasa og ágengir túristar angra kirkjugesti Dóttirin í Súlunesi ákærð Vonast til að spáin rætist ekki: Rigning og 22 metrar á sekúndu Rannsaka áhrif samfélagsmiðla á heilastarfsemi barna Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Gat ekki sannað að verkstæðið tjónaði vélina Mögulegur fyrirboði um goslok Sjá meira
Mótmæli boðuð fyrir utan Gallerí Fold Samband Íslenskra Myndlistarmanna (SÍM) boðar til mótmæla við Gallerí Fold á Rauðarárstíg klukkan 18:00 í dag. 12. október 2009 10:21