Innlent

Krufningsskýrsla lögð fram í morðmáli

Bústaðurinn þar sem morðið var framið.
Bústaðurinn þar sem morðið var framið.

Matsmaður gaf skýrslu og fór yfir tiltekin matsatriði sem varðar rannsókn réttarmeinafræðings í morðmáli sem kom upp í Grímsnesi í nóvember á síðasta ári. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í morgun.

Einn maður er ákærðir fyrir morðið og svo hin þrjú fyrir að koma ekki slösuðum manni til hjálpar. Þau heita Rimvydas Stasiulionis, Ausra Zelvyté, Diana Kiburyte og Jurijus Teterevas.

Rimvydas er sakaður um stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða mannsins í sumarbústaðnum í Grímsnesi. Í ákæru segir að hann hafi ráðist á manninn og veitt honum banvæna áverka með hnefahöggum og spörkum.

Við rannsókn á málinu var meðal annars notast við blóðferlarannsóknir sem leiddi lögreglu á rétta braut við rannsókn málsins en þau neituðu öll nokkuð hefði gerst í upphafi.

Litháarnir neita allir sök. Einn fyrir að hafa valdið dauða mannsins, hin fyrir að koma ekki slösuðum manni til hjálpar.

Í fyrirtökunni í dag var meðal annars farið yfir krufningaskýrslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×