Lífið

Listamenn styrktir

Styrkir listamenn
Alexander sýnir heimildarmynd um verndun hafsins. Ágóðinn rennur til styrktar listamönnum.
fréttablaðið/arnþór
Styrkir listamenn Alexander sýnir heimildarmynd um verndun hafsins. Ágóðinn rennur til styrktar listamönnum. fréttablaðið/arnþór

Listamaðurinn Alexander Zaklynzky stendur fyrir kvikmyndasýningu í Hafnarhúsinu til styrktar íslenskri list. Sýnd verður heimildarmyndin A Sea Change, í leikstjórn Barböru Ettinger, sem fjallar um áhrif mengunar og ofveiði á lífríki hafsins og hefur hlotið fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðum víða um heim.

„Aðstandendur kvikmyndarinnar höfðu samband við mig því þeir vildu sýna myndina hér á landi. Ég hélt að það væri sniðugt að sýna myndina og láta ágóðann renna til styrktar íslenskum listamönnum sem eru á leið til Danmerkur til að taka þátt í Climate Forum-ráðstefnunni sem haldin verður í desember," segir Alexander.

„Við erum að leita eftir verkum eftir fleiri listamenn til að hafa með okkur út til sýningar. Verkin verða þó að tengjast umhverfisvitund á einhvern hátt því ráðstefnan fjallar um umhverfismál. Ég tel að listamenn geti átt stóran þátt í að auka umhverfisvitund fólks með list sinni og finnst mikilvægt að listamenn séu svolítið meðvitaðir um umhverfi sitt. Ef fólk hefur áhuga á að sýna verk á ráðstefnunni þá getur það haft samband við mig í gegnum síðuna www.asea.is," segir Alexander.

Myndin verður sýnd laugardaginn 10. október klukkan 18.00 og er aðgangseyrir 500 krónur. - sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.