Dikta fagnar nýrri breiðskífu í kvöld 19. nóvember 2009 14:30 Hljómsveitin Dikta Mynd/Anton
Ný plata hljómsveitarinnar Diktu birtist í verslunum 16. nóvember, eftir fjögurra ára bið, en á plötunni Get It Together má meðal annars finna lögin Let Go og Just Getting Started. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitinni. „Þessi frábæru lög ættu að vera allflestum að góðu kunn en þau hafa bæði hljómað reglulega í útvarpstækjum landsmanna. Hið síðarnefnda var t.d. annað vinsælasta lag Rásar 2 á síðasta ári. Þetta meistaraverk er uppfullt af ódauðlegum tónsmíðum þar sem tvinnað er saman frábærum textum og undurfögrum laglínum á eftirminnanlegan hátt. Sveitin hefur spilað á fjölmörgum tónleikum um allan heim og hefur orð á sér fyrir að vera frábær á sviði. Platan var hljóðrituð í sumar af sveitinni sjálfri en til að reka smiðshöggið á snilldina fékk hljómsveitin til liðs við sig sænska upptökustjórann Jens Bogren til að hljóðblanda verkið. Síðasta plata hljómsveitarinnar Hunting For Happiness kom út árið 2005 og hlaut frábæra dóma hlustenda og gagnrýnenda, m.a. 5/5 í Mbl. og var valin ein af 100 bestu plötum Íslandssögunnar. Á Get It Together hefur hljómsveitin Dikta sig til flugs og nær að skipa sér sess sem ein fremsta rokkhljómsveit Íslands. Í kvöld mun Dikta halda upp á útgáfu plötunnar á Nasa við Austurvöll. Verður platan spiluð í heild sinni og verður öllu til tjaldað til að gera kvöldið sem ógleymanlegast fyrir alla viðstadda. Eins og þeir sem hafa séð Diktu á sviði geta vitnað um má búast við flugeldasýningu fyrir öll skilningarvit og mun enginn fara ósnortinn heim," setir í tilkynningunni.
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira