Innlent

Tóku vel á móti Ólafi Ragnari

„Ertu að skoða Facebook?“ spurði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gest Rauðakrosshússins í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
„Ertu að skoða Facebook?“ spurði Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands gest Rauðakrosshússins í gær. Fréttablaðið/Vilhelm
Gestir Rauða krosshússins tóku fagnandi á móti Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, þegar hann kynnti sér starfsemina í Borgartúni 25 í Reykjavík um miðjan dag í gær.

Forsetinn fór á milli starfsstöðva, ræddi við starfsfólk og gesti sem nýta sér þjónustu Rauða krossins. Meðal annars gerði hann stans hjá prjónahópi og hjá aðstandendum hláturjóganámskeiðs.

Rauða kross-húsið býður upp á ókeypis námskeið og stuðning, en þar er þjónustumiðstöð þar sem einstaklingar og fjölskyldur geta leitað eftir stuðningi til að takast á við breyttar aðstæður í kjölfar efnahagshrunsins. Að sögn starfsfólks sækja um 50 manns Rauða kross-húsið á degi hverjum.- óká



Fleiri fréttir

Sjá meira


×