Seðlabankafrumvarpið endar í klúðri 25. febrúar 2009 20:43 Birgir Ármannsson segir breytingatillöguna einsdæmi.
Birgir Ármannsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd Alþingis, segir að meðferð seðlabankafrumvarpsins hafi endað í algjöru klúðri líkt. Á fundi viðskiptanefndar í kvöld var frumvarpið samþykkt úr nefnd og verður að öllum líkindum að lögum á morgun. Breytingartillagan, sem kom frá fulltrúum stjórnarflokkanna og Framsóknarflokksins, felur í sér að ef peningastefnunefnd metur það svo að alvarlegar hættur sem ógni fjármálakerfinu steðji að skuli hún opinberlega gefa út viðvörun þegar tilefni er til. Birgir segir að með þessu sé verið að breyta eðli peningastefnunefndar. „Það var ekki hlutverk hennar að fylgjast með fjármálalegum stöðugleika," segir Birgir. Hann gagnrýnir að breytingatillagan hafi verið samþykkt án þess að til nefndarinnar hafi verið kallaðir nokkrir sérfræðingar til að meta áhrif af henni. Birgir bendir jafnframt á að í dag hafi verið kynnt skýrsla ESB um fjármálastarfsemi. „Við stóðum í þeirri trú að nefndin fengi tækifæri til þess að fjalla um skýrsluna," segir Birgir. Hann segir að hins vegar hafi ekki gefist færi á að fara út í þær umræður þar sem stjórnarflokkarnir og framsókn hafi komið með tillögu sína tilbúna til afgreiðslu Þá segir Birgir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í viðskiptanefnd fái ekki betur sé en að breytingartillagan sem samþykkt var eigi sér enga stoð í skýrslu ESB. „Ég held að þessi breytingatillaga sé einsdæmi í löggjöf um seðlabanka. Ég held að það sé ekki hægt að finna hana í löggjöf um seðlabanka í neinu öðru ríki," segir Birgir. Birgir segir því að meðferð seðlabankafrumvarpsins í þinginu hafi endað í algjöru klúðri, en bætir því við að þannig hafi málið nú reyndar líka byrjað.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira