Ráða lögfræðing vegna deilu við Háskóla Íslands 14. janúar 2009 17:57 Gísli Már Gíslason, prófessor í líffræði og formaður Félags prófessora.
Félag prófessora við ríkisháskóla hafa ráðið Ragnar Tómaas Árnason lögfræðing til þess að gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna vegna ákvörðunar Háskóla Íslands um að auka kennsluskyldu kennara og minnka rannsóknarskyldu þeirra. Félagið telur að þarna sé um kjarabundin starfsréttindi að ræða. Aukin kennsluskylda leggst illa í prófessora sem hafa mótmælt breytingunni. „Það er auk þess ótrúleg óskammfeilni að tilkynna kennurum HÍ að kennsla þeirra verði stórlega aukin með þriggja daga fyrirvara í miðju jólaleyfi," segir Gísli Már Gíslason, formaður Félags prófessora við ríkisháskóla, í tölvubréfi sem sent var á starfsmenn Háskóla Íslands fyrr í dag. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, sagði í Fréttablaðinu í dag að skólinn hafi stækkað um þriðjung frá því í haust og skólinn þurfi á starfsmönnum sínum að halda. Áformum vegna rannsóknarsamnings við stjórnvöld verði að hluta frestað. Tilfærslur verða á starfsskyldum hjá ákveðnum hópum. Kennsluskyldan eykst og rannsóknarskyldan minnkar hjá kennurum, einkum prófessorum. Misjafnt er eftir aldri og afköstum hversu mikið þetta er. „Þetta eru talsvert margir, sennilega 150 manns. Við skerum niður um 120 milljónir með þessum tilfærslum," sagði Kristín í Fréttablaðinu. Gísli segir í tölvupóstinum að skammt sé síðan að yfirstjórn Háskóla Íslands hafi mótað þá stefnu að skólinn skuli verða í hópi 100 bestu háskóla samkvæmt svokölluðum Sjanghæ mælikvarða. Til að komast í hóp þeirra 100 bestu þurfa háskólar að uppfylla kröfur um birtingar í alþjóðlegum vísindaritum, útskrifa ákveðinn fjölda doktora á ári og uppfylla fleiri rannsóknatengdar kröfur. „Það er því augljóst að til þess að komast ofar á þennan lista, þurfa kennarar skólans að leggja sig alla fram við rannsóknir og leiðbeiningu doktorsnema. Því skýtur skökku við þegar aukin er kennsla hjá þeim prófessorum sem eru fremstir í rannsóknum án þess að það sé einu sinni athugað hver skipting vinnutíma í kennslu og rannsóknir er í skólum sem eru í efsta hluta Sjanghæ skrárinnar," segir Gísli. Ekki náðist í Gísla vegna málsins.
Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira