Innlent

Suðurnesjamenn slá skjaldborg um álver

Suðurnesjamenn ætla að slá svokallaðri skjaldborg um álver og atvinnuuppbyggingu í dag. Ætlunin er að fá fólk til að fjölmenna í Helguvík til að lýsa stuðningi við álversframkvæmdirnar þar. Aðstandendur vilja með þessu vekja athygli á mikilvægi stóriðjuframkvæmda og atvinnuuppbyggingar en þeir hafa áhyggjur af ósætti í ríkistjórnarflokkunum um málið.

Á Suðurnesjum mælist mesta atvinnuleysi á landinu en gert er ráð fyrir að 1800 störf geti skapast á svæðinu verði álver í Helguvík að veruleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×