Innlent

Fangar peningalausir vegna verkefnaskorts

Verulega hefur dregið úr atvinnu fanga á Litla-Hrauni og hafa fangarnir nú sáralitla peninga milli handanna en dagpeningarnir duga ekki einu sinni fyrir sígarettum. fréttablaðið/heiða
Verulega hefur dregið úr atvinnu fanga á Litla-Hrauni og hafa fangarnir nú sáralitla peninga milli handanna en dagpeningarnir duga ekki einu sinni fyrir sígarettum. fréttablaðið/heiða

Kreppan bitnar harkalega á föngum. Vinna hefur nánast lagst niður á Litla-Hrauni eftir að kreppan skall á og möguleikar fanga til að vinna sér inn peninga hafa dregist verulega saman. Fangarnir eru síður í stakk búnir til að framfleyta sjálfum sér.

Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, segir að stöðugt sé erfiðara að fá verkefni fyrir fangana. Verkefni tengd byggingarvinnu hafi lagst niður og í númeraframleiðslunni sé nánast ekkert að gera.

„Í trésmiðjunni höfum við sárafá eða engin verkefni nema þau sem við reynum að búa okkur til sjálf. Við vorum með vörubrettasmíði. Ekkert hefur verið að gera í því í vetur. Þetta hefur reynst okkur mjög erfitt og þá um leið strákunum því að stór hluti af endurhæfingu þeirra er að hafa vinnu,“ segir Margrét.

Fangar hafa getað keypt nauðsynjar fyrir þá þóknun sem þeir fengu fyrir vinnu sína og því ekki þurft að leita á náðir fjölskyldunnar. Þeir hafa nú sáralitla peninga milli handanna því að dagpeningar nægja ekki fyrir einum sígarettupakka.

„Margir þeirra eiga fjölskyldur, eiginkonu og börn utan veggja og þar hefur líka kreppt að. Sumar eiginkonur hafa misst vinnuna. Þetta hefur mikil áhrif á fangana, bæði andlega og líkamlega,“ segir Margrét.

Fjölbrautaskóli Suðurlands sér um nám í fangelsunum en fjárveitingar hafa verið skornar niður til skólans. Þá hefur áformum um að hefja byggingaframkvæmdir á Litla-Hrauni verið frestað.

Starfsmenn á Litla-Hrauni hafa lækkað í launum og dregið úr aukavinnu. Mjög þröngt er í búi.

Biðlisti eftir afplánun hefur lengst verulega. Fyrir fjórum árum voru fimmtíu menn á biðlista en í dag eru þeir um 200. Dómar hafa þyngst og afplánunartíminn er mjög langur. Þeir sem taldir eru hættulegir eru teknir strax í afplánun og sömuleiðis þeir sem óska eftir að fá að afplána með stuttum fyrirvara.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×