Skoða nettóarð virkjunar 30. maí 2009 06:00 Steingrímur telur að nauðsynlegt sé að reikna út hversu mikil nettó verðmætaaukning verði í samfélaginu af verkefni á borð við Kárahnjúkavirkjun. Mynd/Daníel Rúnarsson
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telur nauðsynlegt að gera Kárahnjúkavirkjun heildstætt upp og fá á hreint hver er nettó virðisaukinn sem eftir verður í samfélaginu. Hann segist hafa beðið sitt fólk í ráðuneytinu að kanna hvort ekki sé hægt að taka þau gögn saman. Ekki er þó ákveðið með heildarúttektina. Steingrímur segir OECD hafa gagnrýnt það á sínum tíma að slík athugun hafi ekki legið fyrir. Hann og flokksmenn hans, hafi tekið undir þá gagnrýni, enda sé nauðsynlegt að gera sér grein fyrir raunverulegri arðsemi virkjunarinnar. „Við þurfum að átta okkur á því, bæði til að gera þetta verkefni upp og eins fyrir framtíðina, hver heildararðsemi af verkefni er. Hver nettóarðurinn er fyrir þjóðarbúið af verkefni af þessu tagi. Sú vinna fór aldrei fram," segir Steingrímur. „Það verður að fá á hreint hver nettóvirðisaukinn er sem eftir stendur í íslensku hagkerfi af fjárfestingu sem er á þessum forsendum; að eigandinn sé erlendur og arðurinn gangi til hans. Inn í það þarf að taka allan kostnað, til dæmis við fjárfestingu. Slík greining er nauðsynleg og verður að liggja fyrir." Steingrímur segir dóm reynslunnar þó vera hið raunverulega arðsemismat.- kóp
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Sjá meira