Innlent

Geðspekivefur HÍ opnaður í dag

Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnaði vefinn á Háskólatorgi í dag.
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnaði vefinn á Háskólatorgi í dag.
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnaði sérstakan vef um geðrækt við Háskóla Íslands á Háskólatorgi í dag.

Markmið vefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli fólks á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Einnig er ætlunin með vefnum að auka þekkingu stúdenta, starfsfólks og almennings á einkennum helstu geðraskana og veita upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði hér á landi.

Þessari nýju upplýsingamiðlun er þannig í senn ætlað að upplýsa nemendur, starfsfólk Háskóla Íslands og almenning um stuðningsúrræði og vinna gegn fordómum í garð geðraskana.

Efni geðræktarvefsins er sett fram á skýran og afar aðgengilegan hátt og vekur hann athygli á því álagi sem fylgir því að vera í námi. Þannig geta nemendur áttað sig sem best á streituvöldum og áhættuþáttum sem eðlilega tengjast akademísku samfélagi og brugðist við þeim.

Vefurinn verður öllum opinn og er á slóðinni http://www.ged.hi.is/






Fleiri fréttir

Sjá meira


×