Þreifingar við Breta vegna fyrirvara um ríkisábyrgð 15. júlí 2009 03:45
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að óformlegar þreifingar hafi átt sér stað á milli Íslendinga annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar vegna afgreiðslu Alþingis á frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave. Viðsemjendur hafa verið upplýstir um að mögulega verði settir fyrirvarar um samninginn. Viðræðurnar eru mjög óformlegar. Svavar Gestsson, formaður samninganefndar Icesave, kannast ekki við viðræðurnar, enda hafi hans hlutverki lokið þegar skrifað var undir samninginn. Hann segir ómögulegt að segja hver yrðu viðbrögð Breta og Hollendinga við fyrirvörum. „Ég veit ekki um það, en mér finnst ekki skrýtið að Alþingi velti öllu mögulegu fyrir sér varðandi pólitíska umgjörð málsins. Alþingi hefur síðasta orðið í því, eins og því hvort það samþykkir samninginn eða synjar honum. Upphaflega var gert ráð fyrir því að málið kæmi úr nefndum fyrir helgi og til annarrar umræðu á Alþingi. Nú eru allar líkur á að það verði ekki fyrr en eftir helgina. Verið er að reyna að ná samstöðu um samþykkt afgreiðslu þingsins, hvaða fyrirvara eða samþykktir þingið gerir vegna ríkisábyrgðarinnar. Mögulegt er að stjórnarandstaðan, eða hluti hennar, sameinist stjórninni um þær tillögur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er líklegt að frumvarpið verði samþykkt á Alþingi. Í greinar-gerð með því yrði hins vegar kveðið á um ríkari endurskoðunarákvæði, jafnvel færi á einhliða uppsögn, og greiðslubyrði. Fjármálaráðherra staðfesti í gær frétt Fréttablaðsins um að erlendar skuldir þjóðarbúsins stefni í að vera yfir 200 prósent af vergri landsframleiðslu. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að miðað við að verg landsframleiðsla verði tæpir 1.430 milljarðar á þessu ári, nemi sú tala um 2.800 til 3.000 milljörðum miðað við þær uppgjörsaðferðir sem Seðlabankinn og fjármálaráðuneytið nota. - kóp /
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Fleiri fréttir Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Sjá meira