Drekaútboðið stórkostlegur áfangi Kristján Már Unnarsson skrifar 15. maí 2009 18:45
Tvær umsóknir bárust um sérleyfi til leitar og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu áður en frestur rann út klukkan fjögur í dag. Orkumálastjóri segir þetta stórkostlegan áfanga að fá tvo trausta aðila, sem meti líkurnar á olíu það miklar á svæðinu að þeir séu tilbúnir að leggja háar fjárhæðir í verkefnið.Þetta fyrsta olíuleitarútboð í sögu Íslands hófst í janúar og þegar klukkan var að nálgast fjögur í dag biðu menn spenntir í anddyri Orkustofnunar að sjá hve margir myndu að sækja um.Þegar klukkan sló fjögur höfðu tvær umsóknir borist. Kristinn Einarsson, verkefnisstjóri olíuleitar, sagði menn mjög ánægða með að tvær umsóknir skyldu hafa borist um sérleyfi til olíuleitar.Stjórnarmaður hins norska Sagex Petrolium sagði Stöð 2 að félagið hefði lagt inn umsókn í morgun. Blaðafulltrúi Statoil, Kai Nielsen, sagði hins vegar síðdegis að Statoil hefði ekki sótt um. Nafn hins umsækjandans fá menn að vita á mánudag þegar tilboðin verða opnuð.Kristinn segir að vitað sé um fleiri félög sem hefðu haft áhuga ef þeim hefði tekist að afla sér fjár til að taka þátt í þessu. Orkustofnun eigi þá von á að heyra frá þeim síðar. Tvær umsóknir sé hins vegar alveg nóg til að byrja.Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri segir félögin traust. Þau meti líkurnar það góðar að þau vilji fjárfesta í þessu. Það sé dýrt og erfitt að fara af stað og þetta sé fjárfesting til langs tíma. Hann segir þetta viðurkenningu á þeim rannsóknum sem unnar hafa verið á Drekasvæðinu. Þegar næst verði boðið út verði þetta ekki óþekkt svæði heldur svæði þar sem fyrirtæki hafi verið þegar inni. Þetta sé stórkostlegur áfangi að ná þessum viðskiptum einmitt núna.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira