Innlent

Innbrotsþjófar gripnir glóðvolgir

Tveir þjófar voru gripnir glóðvolgir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og eru þeir nú á bak við lás og slá. Fyrst stóð lögreglan mann að verki þar sem hann var að stinga upp glugga á einbýlishúsi í Hólahverfi. Hann var í annarlegu ástandi og er þekktur afbrotamaður. Hinn braust inn í Sunnubúð við Mávahlíð og komst undan. Við leit í görðum í nágrenninu fundu lögreglumenn hann, þar sem hann reyndi að fela sig, og skammt frá voru tvær fullar körfur af varningi, meðal annars mikið af tóbaki. Hann á líka afbrotaferil að baki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×