Innlent

Fyrrverandi fjármálastjóri Garðabæjar ákærður fyrir fjárdrátt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Alfreð Atlason, fyrrverandi fjármálastjóri hjá Garðabæ, hefur verið ákærður fyrir að hafa dregið sér rúmar 9 milljónir króna í starfi. Samkvæmt ákæru millifærði hann fé af bankareikningum bæjarsjóðs yfir á bankareikninga félaga í sinni eigu eða sér tengdum.

Málið komst upp í ágúst á síðasta ári og lét Alfreð þá umsvifalaust af störfum. Í fréttatilkynningu sem Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, sendi þá frá sér sagði að málið hafi komist upp við reglubundið innra eftirlit. Fjármálastjórinn hafi þá gengist við því að um óheimila ráðstöfun hafi verið að ræða. Hefur hann þá þegar undirritað greiðslutryggingu til Garðabæjar vegna málsins.

Málið gegn Alfreð var þingfest í morgun. Hann lýsti ekki yfir afstöðu til ákærunnar heldur ákvað hann að taka sér frest til að skoða gögn málsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×