Innlent

Bílvelta í Seljahverfi

Bíll valt í Seljahverfi í Reykjavík á sjötta tímanum í morgun. Tveir ölvaðir menn voru í bílnum og sluppu nær ómeiddir en bíllinn stórskemmdist. Þeir voru fyrst fluttir á slysadeild til aðhlynningar og skoðunar, en síðan á lögreglustöðina, þar sem verið er að yfirheyra þá. Tveir aðrir voru teknir úr umferð í Reykjavík í nótt vegna ölvunaraksturs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×