Innlent

Tveir handteknir á Akranesi vegna fíkniefnamáls

Akranes.
Akranes.
Lögreglan á Akranesi handtók síðdegis í gær tvo karlmenn á fertugsaldri eftir að fíkniefni og tæki til fíkniefnanotkunar fundust á heimil annars þeirra. Við leit fundust um 15 grömm af amfetamíni, tæp 5 grömm af kannabisefnum, nokkuð magn af íblöndunarefnum og tækjum til fíkniefnaneyslu.

Við yfirheyrslu viðurkenndi annar mannanna að eiga fíkniefnin og telst málið upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×