Innlent

Fluttur á slysadeild eftir bílslys á Suðurlandsvegi

Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir að bifreið sem hann ók um Suðurlandsveg endaði utanvegar og hafnaði á hvolfi í skurði rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var með meðvitund en ekki er vitað nánar um líðan hans, að sögn lögreglu.

Slysið varð við Kotströnd sem er fáeinum kílómetrum frá Hveragerði. Suðurlandsvegi var lokað um stund og umferð beint um hjáleið við Hvammsveg. Ekki er búið að fjárlægja bifreiðina og vinnur lögregla að rannsókn málsins.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×