Biðlistar í afplánun þrefaldast á sex árum 15. maí 2009 03:45
Fólki sem bíður eftir að komast í afplánun í fangelsum landsins hefur fjölgað úr 53 árið 2003 í 182 nú. Skýringin er þynging refsidóma, segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. Meðalrefsitími hafi til dæmis lengst um þriðjung frá árinu 2006. „Okkur ber að framfylgja öllum fangelsisdómum. Ef hver maður sem fer í fangelsi þarf að vera þriðjungi lengur inni segir það sig sjálft að plássin teppast lengur. Við getum ekki losað nógu mörg pláss til að tæma boðunarlistann," segir hann. Páll nefnir sérstaklega að nú séu að falla þyngri dómar fyrir kynferðis- og fíkniefnabrot en áður. Þannig taki skútusmyglmálin tvö sinn toll af 136 fangaplássum landsins. Fimm sitja inni fyrir þátt sinn í fyrra málinu og sex sitja í varðhaldi vegna þess síðara. Þá má búast við mörgum í afplánun vegna kannabisverksmiðja sem upprættar hafa verið nýlega. Páll segir að hingað til hafi tekist að láta alla hættulega menn hefja afplánun strax. „Það mun ekkert breytast. Þetta þýðir að aðrir þurfa að bíða lengur eftir að komast í afplánun og þeir gætu þurft að bíða mjög lengi, nokkra mánuði eða ár." Byggingu nýs fangelsis hefur verið frestað og því er engin von til þess að biðlistarnir styttist í bráð, segir Páll. Þeir hafi lengst stöðugt síðustu ár og ekkert lát virðist á þeirri þróun. Eigi þeir að styttast þurfi að fjölga rýmum og úrræðum til afplánunar utan fangelsa. Þá er rafrænt eftirlit einnig til skoðunar.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira