Innlent

Tillaga um launlækkun forstjóra LV var á umræðustigi

Kristinn Örn Jóhannsson.
Kristinn Örn Jóhannsson.

Kristinn Örn Jóhannesson formaður VR hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að tillaga um launlækkun hjá Þorgeiri Eyjólfssyni, forstjóra Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LV) hafi verið á umræðustigi en að ekki hafi verið búið að ákveða slíkt innan stjórnar VR.

Þorgeir sagði starfi sínu lausu í dag og svo virðist með þetta mál hafi spilað þar inn í. Þorgeir er með um 2,5 milljónir kr. í laun á mánuði og því hefði hann orðið fyrir umtalsverði launalækkun ef stjórn VR hefði ákveðið að miða ætti laun hans við laun forsætisráðherra.

Tilkynning Kristins er svohljóðandi:

„Á fundinum sagði Ragnar Þór Ingólfsson stjórnarmaður í VR frá hugmyndum sínum um að leggja fram tilmæli til stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á ársfundi þann 25 maí þess efnis að kjör framkvæmdastjóra sjóðsins tækju mið af kjörum forsætisráðherra. Óskaði hann eftir stuðningi og aðstoð við gerð tillögunnar.

Samþykkti stjórn VR tillögu formanns þess efnis að hann myndi aðstoða Ragnar við orðalag tillögunnar og að leggja fram slíka tillögu.

Jafnframt var samþykkt að annar stjórnarfundur yrði boðaður um miðja næstu viku m.a. til að fjalla um væntanlega tillögu.

Að ofansögðu er það ljóst að stjórn VR hefur ekki samþykkt neina tillögu sem slíka en var efnislega sammála um að beina þeim tilmælum til stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna að kjör framkvæmdastjóra tækju mið af kjörum forsætisráðherra.

Finnst mér það miður og gagnrýnivert að, fyrir frumhlaup eins stjórnamanns, hafi ekki tekist að halda þessari vinnu í þeim farvegi sem hún var í og sátt ríkti um."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×