Innlent

Eldur í Suðurhólum - heimilisfólkið flúði

Mynd úr safni.
Mynd úr safni.

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að blokk við Suðurhóla í Breiðholti fyrir stundu. Þar hafði komið upp eldur í íbúð og þurfti heimilisfólkið að flýja út úr íbúðinni. Að sögn varðstjóra var stigagangurinn rýmdur en búið er að slökkva eldinn. Nú er verið að reykræsta íbúðina en um töluverðan eld var að ræða.

Ekki er vitað um upptök eldsins að svö stöddu.

Fyrr í kvöld var slökkviliðið kallað að Grand Hótel í Reykjavík vegna elds í þaki. Þegar komið var á vettvang kom í ljós að iðnaðarmenn voru að bræða dúk, en töluverður reykur kom frá pappanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×