Uppsögnin kostar fimmtán milljónir hið minnsta Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 15. maí 2009 18:30
Uppsögn Þorgeirs Eyjólfssonar á starfi forstjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna kostar sjóðinn fimmtán milljónir hið minnsta. Það tekur mánaðarlífeyrisgreiðslu 800 láglaunamanna að greiða fyrir starfslok hans. Þorgeir Eyjólfsson hefur gegnt starfi forstjóra Lífeyrissjóðs verslunarmanna í um aldarfjórðung. Hann sagði starfi sínu óvænt lausu í morgun. Hann segir á fréttavef Morgunblaðsins í dag að ákvörðunin sé tekin í framhaldi nýlegra breytinga í baklandi sjóðsins, en útskýrir ekki nánar hvaða breytingar það eru. Fréttastofa náði ekki sambandi við Þorgeir í dag. Þorgeir var með um 30 milljónir króna í laun sem forstjóri sjóðsins á síðasta ári og hafði auk þess til umráða Cadilac lúxusjeppa sem kostar lífeyrissjóðinn um 300 þúsund krónur á mánuði. Helgi Magnússon, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna, staðfesti í samtali við fréttastofu nú síðdegis að Þorgeir fengi sex mánaða uppsagnarfrest sinn greiddan líkt og venja væri með forstjóra sem hefðu verið 25 ár í starfi, þó hann hefði sjálfur sagt starfinu lausu. Þá heldur Þorgeir einnig lúxusjeppanum í boði lífeyrissjóðs verslunarmanna. Því má ætla að uppsögn Þorgeirs kosti sjóðsfélaga ekki minna en fimmtán milljónir króna, fyrir utan bílafríðindin. Láglaunamaður í VR greiðir að meðaltali tæpar 19.000 krónur til sjóðsins í hverjum mánuði. Það þarf því lífeyrisgreiðslur tæplega 800 sjóðsfélaga til að dekka kostnað sjóðsins við uppsögn Þorgeirs Eyjólfssonar. Þess má geta að Lífeyrissjóður verslunarmanna tapaði tugum milljarða króna á síðasta starfsári Þorgeirs.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Sjá meira