Aftur boðið í réttinn á enska boltann 15. maí 2009 05:45 Ari Edwald „
Ég vænti þess að nýtt útboð fyrir enska boltann fari í gang fljótlega, og við munum taka þátt í því. Við gerum okkur vonir um að halda sýningarréttinum á þessu vinsæla efni áfram, en á viðráðanlegum kjörum," segir Ari Edwald, forstjóri 365. Fyrirtækið tryggði sér sýningarréttinn á enska boltanum til þriggja ára frá haustinu 2007. Að sögn Ara gerðu aðstæðurnar sem upp komu við bankahrunið og fall krónunnar það að verkum að þess var farið á leit við umboðsaðila efnisins í Bretlandi að sá samningur yrði styttur um eitt ár. Hann gerir ráð fyrir að nýtt útboð, sem gildi til fjögurra ára, verði klárað á næstu mánuðum. „Við erum mjög sátt við þá niðurstöðu. Það hafði verið boðið hátt í enska boltann, meðal annars á grundvelli kostunar sem samið var um í íslenskum krónum, þannig að þegar verðið á sýningarréttinum tvöfaldaðist gerði það okkur erfitt fyrir," segir Ari. Hann gerir ráð fyrir að verðið muni lækka til muna í næsta útboði. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Skjásins, segir fyrirtæki sitt fylgjast grannt með þróun þessara mála. „Við höfum ekki tekið afstöðu til þess hvort við hyggjumst bjóða í réttinn. Fyrst þurfum við að skoða öll útboðsgögn," segir Sigríður. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir RÚV ekki ætla að taka þátt í útboðinu. „Við höfum þá stefnu að fylgja íslenska landsliðinu í alþjóðlegum keppnum, en höfum dregið okkur út úr uppboðum á íþróttaviðburðum sem reknir eru á hreinum viðskiptalegum grundvelli. Við þær aðstæður sem nú ríkja sé ég alls enga ástæðu til að víkja frá þeirri stefnu," segir Páll Magnússon.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira