Innlent

Samkomulag um kaup á þúsundum skammta af bóluefni við svínaflensu

Íslensk yfirvöld hafa gert samning við breska lyfjafyrirtækið Glaxo Smith Klein um kauprétt á 300 þúsund skömmtum af bóluefni við svínaflensu þegar framleiðsla þess hefst í stórum stíl.

Búist er við að lyfjafyrirtækin Glaxo Smith Klein, Sanofi-Aventi, Novartis og Baxter International hefji framleiðslu á bóluefni við svínaflensu um leið og þau fái ræktun af vírusnum sem veldur flensunni frá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni.

Margaret Chan, framkvæmdastjóri stofnunarinnar, sagði í morgun að það yrði líkast til í lok maí. Talið er að fyrstu skammtar af bóluefni verið tilbúnir fjórum til sex mánuðum eftir það en framleiðsla er háð leyfum frá yfirvöldum í viðkomandi framleiðslulöndum.

Bretar hafa þegar pantað fjölmarga skammta af bóluefni frá Glaxo Smith Klein í Bretlandi og Belgar, Finnar og Frakkar sýnt mögulegri framleiðslu þeirra áhuga.

Þær upplýsingar fengust frá Haraldi Briem sóttvarnalækni að íslensk yfirvöld hefðu gert samning við Glaxo Smith Klein um kauprétt á 300 þúsund skömmtum af bóluefninu. Fyrstu skammtarnir ættu því að koma hingað til lands fljótlega eftir að framleiðslan hefjist í stórum stíl.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin greindi frá því í morgun að 7520 manns í 34 löndum hefðu sýkst af flensunni og ríflega 60 látist af völdum hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×