Innlent

Þjóðhagslega hagkvæmt að skima fyrir brjóstakrabbameini

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar
Það er að þjóðhagslega hagkvæmt að skima fyrir krabbameini í brjóstum, samkvæmt nýrri rannsókn sem unnin var við Háskóla Íslands. Hvert ár sem vinnst hjá konum vegna skimunar kostar þjóðfélagið innan við eina milljón króna.

Brjóstakrabbamein er algengasta illkynja krabbamein meðal kvenna á Íslandi. Helga Garðarsdóttir tilvonandi heilsuhagfræðingur vann nýverið rannsókn við hagfræðideild Háskóla Íslands á því hvað það kostar þjóðfélagið að halda úti skipulagðri krabbameinsskimun í brjóstum eins og gert hefur verið hér á landi í rösk 20 ár.

Krabbameinsskimun kostar sitt, á árunum 2006 til 2007 kostaði leitin til dæmis röskar 700 milljónir króna. Ef hins vegar engin skipulögð hópleit væri í boði þá myndi það kosta samfélagið, segir Helga, liðlega 300 milljónir króna. Og þegar ávinningurinn, það er hversu mörg ár konur fá í staðinn, er borinn saman við kostnaðinn kemur í ljóst að hvert ár sem bjargast kostar íslenskt samfélag rétt tæpar 950 þúsund krónur á verðlagi ársins 2008.

Það telst vel ásættanlegur kostnaður til að kaupa þessi lífár og því telur Helga að krabbameinsleit í brjóstum á Íslandi sé þjóðhagslega hagkvæm.

Á árunum 2006 til 2007 bjargaði skipulagða hópleitin um 26 mannslífum og 432 viðbótar lífárum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×