Geðheilsuvefur opnaður við HÍ 24. febrúar 2009 17:03
Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, opnar sérstakan vef um geðheilbrigði við Háskóla Íslands á morgun klukkan tvö í Háskólatorgi. Markmið vefsins er að skapa jákvæða umræðu um geðheilsu og vekja athygli fólks á hárri tíðni álagsþátta meðal háskólanema. Einnig er ætlunin að auka þekkingu stúdenta, starfsfólks og almennings á einkennum helstu geðraskana og veita upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði hér á landi. Þessari nýju upplýsingamiðlun er þannig í senn ætlað að upplýsa nemendur, starfsfólk Háskóla Íslands og almenning um stuðningsúrræði og vinna gegn fordómum í garð geðraskana. Efni geðspekivefsins er sett fram á skýran og afar aðgengilegan hátt og vekur hann athygli á því álagi sem fylgir því að vera í námi. Þannig geta nemendur áttað sig sem best á streituvöldum og áhættuþáttum sem eðlilega tengjast akademísku samfélagi og brugðist við þeim. Geðspekivefurinn er samstarfsverkefni þriggja fræðigreina innan háskólans en að verkinu komu jafnt nemendur og kennarar. Nemendur sem unnu í verkefninu eru Þorgerður Hafstað úr hjúkrunarfræði, Sigríður Einarsdóttir, MA nemi í bókasafns og upplýsingafræði og Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir MA nemi í sálfræði. Kennararnir sem unnu að vefnum nýja eru þær Ágústa Pálsdóttir, dósent í bókasafns- og upplýsingafræði, Jóhanna Bernharðsdóttir, lektor í hjúkrunarfræði og Zuilma Gabríela Sigurðardóttir, dósent í sálfræði. Zuilma Gabríela mun flytja stutt ávarp á morgun við opnun vefsins fyrir hönd aðstandendanna.Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að markmið aðstandenda vefsins sé að hafa á einum stað fræðsluefni tengt geðheilsurækt, áhrif streitu og helstu einkenni geðraskana í þeim tilgangi að dýpka þekkingu á geðheilbrigði, áhættuþáttum, meðferðarúrræðum og stuðla að geðheilbrigði. Vefurinn verður öllum opinn og er á slóðinni http://www.ged.hi.is/
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira