Erlent

Segja 100 uppreisnarmenn hafa fallið

Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar
Jemenskir hermenn bera fallinn félaga til grafar eftir hryðjuverkaárás al-Qaeda í september. MYND/AFP/Getty Images
Jemenskir hermenn bera fallinn félaga til grafar eftir hryðjuverkaárás al-Qaeda í september. MYND/AFP/Getty Images
Jemenskir hermenn réðust gegn herskáum sjía múslimum í norðanverðu landinu í dag og reyndu að ná bænum Harf Sufyan aftur á sitt vald. Fullyrt er að þeir hafi fellt yfir hundrað bardagamenn, þar á meðal tvo leiðtoga úr þeirra röðum.

Aðgerðir hersins hafa staðið í tvær vikur, en meðal annars hefur loftárásum, stórskotaliði og skriðdrekum verið beitt í viðleitni stjórnvalda til að brjóta uppreisnarmenn á bak aftur.

Uppreisnarmennirnir vísa því á bug að leiðtogar sínir hafi fallið í árásinni og saka hermennina um að drepa óbreytta borgara. Enginn óháður aðili hefur gefið út tölu látinna, en yfirvöld fullyrða að þeir hafi fellt hundrað herskárra og náð bænum á sitt vald.

Uppreisnarmennirnir vilja að norðurhluti Jemen lúti valdi sjía, en svæðið er að mestu byggt súnnítum. Forseti Jemen hefur sakað uppreisnarmennina um tilraunir til að steypa ríkisstjórninni af stóli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×