Innlent

Árni Páll vissi ekki af 230 milljóna króna kröfu

Mynd/Anton Brink
Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, vissi ekki að Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum sem nú starfar hjá félagsmálaráðuneytinu, myndi gera 230 milljóna króna kröfu í þrotabú Landsbankans. Sjálfur sagðist hann í umræðum á Alþingi í dag mundi ekki hafa gert samskonar kröfu í sporum Yngva.

Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, spurði Árna Pál hvort hann styddi kröfuna og hann vildi jafnframt vita og hvort ráðherrann teldi að krafan væri siðferðislega rétt. „Eðlilega fer maður að velta fyrir sér hve djúpt ristir sú siðbót sem stjórnarflokkarnir tala um þegar hæstvirtur ráðherra ákveður að ráða sér aðstoðarmann sem gerir slíka kröfu í því umhverfi sem við búum við í dag," sagði þingflokksformaðurinn.

Árni Páll sagði að Yngvi Örn væri ekki fastráðinn starfsmaður ráðuneytisins heldur hefði hann verið ráðinn til að sinna tilteknum verkefnum. Þeim verkefnum fari að ljúka. Ráðherrann benti á að Yngvi hafi þegar hann sótti um stöðu seðlabankastjóra verið metinn hæfur til að gefna starfinu.

„Ég hefði ekki gert þessa kröfu en það er ekki mitt að fella dóma um það," sagði Árni Páll að lokum.


Tengdar fréttir

Tíu fyrrum toppar Landsbankans vilja 2 milljarða

Tíu hæstu kröfur fyrrverandi starfsmanna Landsbankans nema rúmlega tveimur milljörðum króna. Hæstu kröfuna á Steinþór Gunnarsson fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar, en hann fer fram á rúmar 490 milljónir króna.

Verði krafan samþykkt rennur hún til velferðamála

Fyrrum framkvæmdarstjóri Landsbankans, Yngvi Örn Kristinsson, hefur gefið út yfirlýsingu vegna launakröfu sem hann og fleiri fyrrum starfsmenn Landsbankans hafa gert í þrotabú Landsbankans. Hann gerir 229 milljón króna kröfu í þrotabúið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×