Ísland þriðja heims land í tannlækningum 18. apríl 2009 11:03 Fjörtíu börn eru mætt niður á Læknasetrið til þess að þiggja ókeypis tannlæknaþjónustu. „
Við stefnum í það að verða þriðja heims land í tannlækningum," segir formaður tannlæknafélags Íslands, Ingibjörg S. Benediktsdóttir, en félagið hefur boðið upp á ókeypis tannlækningar fyrir börn í Læknasetrinu við Vatnsmýrarveg, nálægt BSÍ. Ástæðan fyrir því að Ingibjörg er svo óspar á lýsingarorðin er sú að í morgun mættu fjörtíu börn á biðstofu félagsins, þar af voru níu börn mætt áður þau opnuðu. „Það er allt fullt hjá okkur," segir hún og bendir á að þetta sé varhugaverð þróun. „Þetta kom okkur mjög mikið á óvart," segir Ingibjörg en Tannlæknafélagi Íslands bauð fyrst upp á ókeypis tannviðgerðir fyrir tveimur vikum síðan. Ástæðan var sú að tannlæknakostnaður er orðinn gríðarlega hár fyrir börn sem fá lítinn stuðning frá ríkinu, ólíkt því sem gengur og gerist á Norðurlöndum. Hér á landi er ástandið orðið svo slæmt að mati Ingibjargar að efnaminni foreldrar geta ekki borgað tannlæknaviðgerðir fyrir börnin sín; afleiðingarnar eru sláandi. „Íslensk börn eru með tvöfalt fleiri skemmdir en á Norðurlöndunum," segir Ingibjörg um þá döpru þróun sem hefur átt sér stað á síðustu árum og áratug. Hún segir að tannheilsa barnanna sé á ábyrgð þjóðarinnar en undanfarin ár hefur stuðningur hins opinbera staðið algjörlega í stað og ekki fylgt neinum verðlagsbreytingum eða öðrum þróunum í samfélaginu þrátt fyrir langt góðærisskeið. Því til rökstuðnings segir Ingibjörg að styrkur til tannviðgerða hefur staðið í stað í rúm tíu ár. „Það er ótrúlegt að við þurfum að standa fyrir svona þjónustu enda erum við rík þrátt fyrir þá tímabundnu erfiðleika sem þjóðfélagið gengur í gegnum núna," segir Ingibjörg en ekki er fyrirséð að hægt sé að líta á öll börnin í dag. Hitt er ljóst, að það er gríðarleg eftirspurn eftir tannviðgerðum fyrir börn, sem Ingibjörgu þykir sorglegt. Tannlæknafélagið mun bjóða upp á samskonar þjónustu tvisvar í maí en svo verður lokað yfir sumarið. Þess má geta að allir tannlæknar sem leggja hönd á plóg eru í sjálfboðavinnu.
Mest lesið Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira