Jafntefli hjá Liverpool og Manchester City Ómar Þorgeirsson skrifar 21. nóvember 2009 14:43 Frá leik Liverpool og Manchester City í dag. Nordic photos/Getty images
Liverpool og Manchester City skildu jöfn 2-2 á Anfield-leikvanginum í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni en öll fjögur mörkin komu í seinni hálfleik. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda í leiknum til þess að blanda sér að fullum þunga í toppbaráttuna. Fyrri hálfleikur var aftur á móti tíðindalítill fyrir utan það að Liverpool missti tvo leikmenn útaf vegna meiðsla. Fyrst Daniel Agger á 7. mínútu og svo Ryan Babel á 18. mínútu. Staðan var markalaus þegar flautað var til hálfleiks. Seinni hálfleikur var aftur á móti mjög líflegur og eftir aðeins fimm mínútna leik náði varnarmaðurinn Martin Skrtel að koma Liverpool yfir þegar hann potaði inn aukaspyrnu Steven Gerrard. Emmanuel Adebayor náði hins vegar að jafna leikinn með góðu skallamarki þegar um tuttugu mínútur lifðu leiks. Stuttu síðar tóku gestirnir svo forystu í leiknum þegar Stephen Ireland skoraði af stuttu færi eftir góðan undirbúning hjá varamanninum Carlos Tevez. Þetta reyndist þó skammgóður vermir fyrir City því Liverpool jafnaði leikinn strax í næstu sókn en þar var Yossi Benayoun á ferðinni. Hvorugu liðinu tókst að skora á lokakafla leiksins og niðurstaðan því sem segir 2-2 jafntefli. Þetta var sjötta jafntefli Manchester City í röð í ensku úrvalsdeildinni en Liverpool hefur nú aðeins unnið einn leik af síðustu tíu leikjum í öllum keppnum.
Mest lesið Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn Golf Rekstrarstjóri FIFA á förum vegna Infantino Fótbolti Pina nú verðmætasta knattspyrnukona heims Fótbolti Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Íslenski boltinn Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Íslenski boltinn Sjáðu glæsimark Hafrúnar Rakel í Danmörku Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Íslenski boltinn „Kýs að líta á glasið hálffullt“ Fótbolti Uppgjörið: Fram - Stjarnan | Framarar nálgast annað sætið Íslenski boltinn Hársbreidd frá endurkomu gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Sjá meira