Skaða þjóðarhagsmuni vegna andúðar á stóriðju Kristján Már Unnarsson skrifar 18. febrúar 2009 18:50
Fyrrverandi og núverandi umhverfisráðherra voru sakaðir á Alþingi í dag um að skaða hagsmuni Íslands vegna andúðar á álverum með því að reyna ekki að viðhalda íslenska undanþáguákvæðinu í væntanlegum loftlagssáttmála Sameinuðu þjóðanna.Illugi Gunnarsson hóf umræðuna og hvatti umhverfisráðherra til að sækja það fast að halda íslenska ákvæðinu á væntanlegri loftlagsráðstefnu í Kaupmannahöfn. Ef Íslendingar afsöluðu sér möguleikum til að nýta orkuna í fallvötnum og iðrum jarðar, með því að gangast undir skilyrði sem væru of þröng fyrir þjóðina, væru þeir um leið að afsala sér forræði yfir þessum mikilvægu auðlindum, sagði Illugi.Kolbrún Halldórsdóttir umhverfisráðherra kvaðst ætla að fylgja stefnu sem síðasta ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar markaði, sem þýddi 15-20 prósenta samdrátt í losun á næstu tíu árum. Hún kvaðst styðja þau markmið enda færu þau saman við markmið sín og síns flokks í loftslagsmálum og náttúruvernd.Siv Friðleifsdóttir sagði það hafa kostað geysilega vinnu að ná ákvæðinu í gegn. Íslenska ákvæðið væri gott fyrir lofthjúpinn og því væri það grátlegt að Vinstri grænir skyldu vinna gegn þessu ákvæði. Hún sagði Þórunni Sveinbjarnardóttur fyrrverandi umhverfisráðherra ekki hafa viljað neinar undanþágur fyrir Ísland og taldi of seint að snúa við. Það væri of seint að fara af stað núna til að ná íslenska ákvæðinu. Það þyrfti svo mikla vinnu til að viðhalda því.Kristinn H. Gunnarsson sagði það algerlega óskiljanlegt að til væru íslenskir stjórnmálaflokkar sem hefðu þá stefnu að rýra möguleika Íslendinga til atvinnuppbyggingar, jafnvel þótt þeir möguleikar væru heiminum í heild til góða. Andúð þeirra á stóriðju væri svo mikil að þeir vildu frekar skaða hagsmuni lands og þjóðar.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Fleiri fréttir Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Sjá meira