Bing Crosby syngur fyrir Bubba 12. september 2009 05:00 Sjaldgæft myndefni Meðal þess sem má sjá í heimildarmynd <B>Bubba Morthens um Laxá í Aðaldal er sjálfur </B>Bing Crosby að taka lagið við árbakkann. Á svarthvítu myndinni kveður Crosby land og þjóð og stígur um borð í Loftleiðavél eftir velheppnaða veiði í hinni sögufrægu á árið 1969. „
Ég var náttúrlega bara í skýjunum þegar við fundum þessar upptökur. Þær eru algjör demantur,“ segir Bubbi Morthens. Hann komst heldur betur í feitt þegar myndbrot með tónlistargoðsögninni Bing Crosby kom í leitirnar. Þar semur Crosby lag um Laxá í Aðaldal en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum er Bubbi nú að leggja lokahönd á heimildarmynd um ána. „Það er ekki nóg með að hann syngi heldur fer hann bara algjörlega á kostum. Hann setur í lax og fiskurinn fær slý á hausinn. Og þá heyrist Crosby segja; „this guy looks like a hippie“ eða, þessi lítur út eins og hippi.“ Crosby kom hingað til lands árið 1969 og heill her af fólki fylgdi honum við hvert fótmál. Bandarísk sjónvarpsstöð var með í för og tók myndirnar en Bubbi segir að gömlu Loftleiðir hafi átt réttinn. „Og þannig fengum við heimild til að nota myndirnar.“ Varla þarf að hafa mörg orð um hvers lags goðsögn Bing Crosby er; hann á vinsælasta jólalag allra tíma, White Christmas, en söngurinn um jólasnjóinn hefur selst í yfir 100 milljónum eintaka. Bing Crosby er þar að auki þriðji vinsælasti leikari allra tíma ef marka má tölur úr miðasölu, aðeins Clark Gable og John Wayne skáka honum. Bubbi segir að fleiri gullmola sé að finna í heimildarmyndinni, þar á meðal myndbrot með listamanninum Guðmundi frá Miðdal. „Og svo er það náttúrlega rúsínan í pylsuendanum, sem eru myndir af Lee Wulff við veiði í ánni,“ segir Bubbi en fyrir þá sem ekki vita, þá er Wulff þessi algjör frumkvöðull í fluguveiðiheiminum. - fgg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira